Jörundur Hilmarsson

1946–1992


Jörundur Hilmarsson fæddist í Reykjavík 15. mars 1946. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1966 og hóf þá nám í indóevrópskri samanburðarmálfræði við Óslóarháskóla en þaðan lauk hann cand.mag.-prófi 1974 og mag.art.-prófi 1977. Lokaritgerð hans til mag.art.-prófs fjallaði um eigindarhljóðskipti í indóevrópsku, Om kvalitativ avlyd i indoeuropeisk.
Jörundur gerði hlé á námi sínu í Ósló veturinn 1971–72 til að geta lagt stund á litháísku og baltnesk málvísindi við háskólann í Vilníus í Litháen. Jörundur kom oft til Litháens eftir það og talaði og ritaði litháísku reiprennandi. Þegar litháískir ráðamenn komu til Íslands 1990 og 1991 þeirra erinda að leita eftir stuðningi Íslendinga við sjálfstæðiskröfu Litháa var Jörundur fylgdarmaður þeirra hér á landi og túlkur bæði á fundum með íslenskum stjórnvöldum og fjölmiðlum. Þegar Íslendingar höfðu viðurkennt sjálfstæði Litháa árið 1991 skipaði Vytautas Landsbergis Jörund Hilmarsson heiðursræðismann Litháens á Íslandi í þakklætisskyni fyrir störf hans í þágu Litháens.
Jörundur las eitt misseri við Sorbonne-háskóla í París árið 1973 og árin 1979–81 fékkst hann við rannsóknir á tokkarísku við Kílarháskóla í Þýskalandi sem styrkþegi Alexander von Humboldt stofnun­arinnar. Tokkaríska var meginrannsóknarefni Jörundar eftir það og 1986 varði hann doktorsritgerð sína við háskólann í Leiden í Hollandi en hún ber heitið Studies in Tocharian Phonology, Morphology and Etymology with Special Emphasis on the o-Vocalism.
Frá 1981 stundaði Jörundur rannsóknir á Íslandi og kenndi við Háskóla Íslands. Hann ritaði fjölda fræðigreina um tokkarísk og indóevrópsk málvísindi í fræðitímarit hérlendis og erlendis. Árið 1987 stofnaði hann tímaritið Tocharian and Indo-European Studies (TIES) og fékk til liðs við sig í ritnefnd valinkunna fræðimenn hvaðanæva úr heiminum. Jafnframt tímaritinu kom út sérstök röð stærri ritgerða í bókarformi en meðal þeirra voru tvær bækur eftir Jörund sjálfan, The Dual Forms of Nouns and Pronouns in Tocharian (1989) og The Nasal Prefixes in Tocharian (1991).
Jörundur ritstýrði tímaritinu og bar sjálfur hitann og þungann af útgáfunni. Það varð þegar í stað mikil­vægur vettvangur fræðilegrar umræðu um tokkarísk málvísindi, enda var það fyrsta alþjóðlega tímaritið sem sem helgað var því fræðasviði. Eftir fráfall Jörundar hefur útgáfu Tocharian and Indo-European Studies verið haldið áfram í Danmörku.
Um skeið vann Jörundur með Ásgeiri Blöndal Magnússyni að útgáfu Íslenskrar orðsifjabókar Ásgeirs sem kom út hjá Orðabók Háskólans 1989. Jörundur lagði líka grunn að íslenskri orðmyndunarorðabók ásamt Guðrúnu Kvaran orðabókarritstjóra. Þegar Jörundur féll frá hafði hann í smíðum tokkaríska orðsifjabók og kom hún út hjá Málvísindastofnun Háskóla Íslands 1996 undir heitinu Materials for a Tocharian Historical and Etymological Dictionary.
Jörundur lést í Reykjavík 13. ágúst 1992 eftir harða baráttu við krabbamein.

Helstu heimildir:

Guðrún Þórhallsdóttir. 1993. †Jörundur Hilmarsson 1946-1992. Tocharian and Indo-European Studies 6:7–9.
Pinault, Georges-Jean. 1994. Jörundur Hilmarsson (15.3. 1946–13.8. 1992). Kratylos 39:217–20.
 
 
 

Ritaskrá Jörundar Hilmarssonar

(sjá einnig Tocharian and Indo-European Studies 6:11–14)


Forritun og hönnun: ©2006-2010 Frćđi ehf.