1. stjórnarfundur 2008Nýja Garði, 21. janúar kl. 16:00 1. 22. Rask-ráðstefnan 26. janúar næstkomandiFormaður gerði grein fyrir undirbúningi og kynningu. Rætt var um fundarstjórn. 2. Aðrir fyrirlestrarFjallað var um dagskrá vormisseris eftir Rask-ráðstefnuna. Nokkarar hugmyndir komu fram sem betur verður unnið úr á næstunni. 3. Undirbúningur aðalfundarAðalfund skal skv. lögum félagsins halda fyrir lok janúar ár hver. Nú háttar svo til að ekki næst að standa við það. Því veðrur reynt að finna tíma í febrúar í staðinn og var formanni falið að skipuleggja það. Ekki þykir ástæða til að efna til húsnæðiskostnaðar við aðalfundinn og veður hann því haldinn í stofu 301 í Nýja Garði. Fram kom að allir stjórnarmenn gefa kost á sér til endurkjörs. 4. Íslenskt málHöskuldur og Haraldur gerðu grein fyrir því að 28. árgangur er kominn í umbrot. 5. Önnur mál.Engin önnur mál. Fleira var ekki gert og fundi slitið. | ||