Aðalfundur 2009Nýja Garði Ellefu félagsmenn mættu til fundarins. Formaður, Haraldur Bernharðsson setti fundinn. Hann lagði til að Margrét Guðmundsdóttir annaðist fundarstjórn og var það samþykkt einum rómi. Margrét fól Bjarka M. Karlssyni fundarritun. 1. Skýrsla stjórnarHaraldur Bernharðsson lagði fram skriflega ársskýrslu og gerði grein fyrir henni. Í umræðum um skýrsluna var einkum fjallað um tímarit félagsins og málfræðiorðasafn. Að umræðum loknum var skýrslan samþykkt. 2. Ársreikningar 2008Gjaldkeri, Theódóra Anna Torfadóttir, lagði fram ársreikninginn og gerði grein fyrir honum. Í umræðum var sprut um prentkostnað og leiðir til að lækka hann. Reikningar voru síðan samþykktir. 3. Nýtt merki félagsinsFráfarandi stjórn kynnti tillögu að nýju merki og var það samþykkt. Merkið má m.a. sjá á heimasíðu félagsins. 4. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmannaHaraldur Bernharðsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku en gerði eftirfarandi tillögu um stjórnarkjör: Theódóra Anna Torfadóttir, formaður Veturliði Óskarsson, varamaður Guðrún Þórhallsdóttir og Kristín Bjarnadóttir, skoðunarmenn reikninga Tillagan var einróma samþykkt. 5. Önnur mála) Afmæli félagsins b) Útgáfumál Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 22:05. | ||