1. stjórnarfundur 2009
Nýja Garði, 6. janúar 2009
Mætt:
Haraldur Bernharðsson (HB)
Bjarki M. Karlsson (BMK)
Höskuldur Þráinsson (HÞ)
Veturliði Óskarsson (VÓ)
Ásta Svavarsdóttir (ÁS)
Theódóra Anna Torfadóttir boðaði forföll.
1. Rask-ráðstefnan 2009
Dagskráin er að verða fullmótuð, átta fyrirlesarar hafa þegar staðfest þátttöku. Fundarsalur Þjóðminjasafnsins hefur verið bókaður.
2. Merki félagsins
Lögð var fram lokatillaga hönnuðar að nýju merki fyrir félagið í þremur útgáfum; A B og C. Stjórnin samþykkti að mæla með útgáfu B við aðalfund til samþykktar eða synjunar. Tillagan verður kynnt á heimasíðu félagsins fram að aðalfundi. Félagið hefur fram til þessa ekki átt sér merki.
3. Aðalfundur
Samþykkt að auglýsa aðalfund þann 20. janúar í Nýja Garði. Formaður gefur ekki kost á sér til endurkjörs.
4. Fjármál
Fram kom að styrkur menntamálaráðuneytis, sem óttast hafði verið að yðri skorinn niður, verði veittur áfram en lækki þó um þriðjung.
Illa gengur að koma greiðslum frá áskrifendum erlendis til landsins. Í mörgum tilvikum hafa verið sendar ávísandir sem ekki er hægt að leysa út í íslenskum bönkum. Hluti vandans mun vera sá að viðskiptabanki félagsins, Landsbankinn, er sá íslensku bankanna sem víðast hafa verið stöðvaðar greiðslur til.
5. Önnur mál
a. Ritstjórar Íslensks máls
Þó að HB gefi ekki kost á sér áfram sem formaður félagsins er hann reiðubúinn að halda áfram sem ritstjóri tímaritsins í félagi við Höskuld Þráinsson. Nú gera lög félagsins fyrir því að ritstjóri sé kosinn á aðalfundi og sé jafnfram einn af fimm aðalmönnum í stjórn þess. Stjórnin telur ekki nauðsynlegt að gera tillögu að breytingu á lögunum vegna þessa þar sem ritstjórnarnir skipta með sér verkum samkæmt samkomulagi sín á milli og getur stjórnarsetan vel fallið undir það. Þá sér stjórnin ekkert því til fyrirstöðu að ritstjórarnir sitji báðir stjórnarfundi en fari þar með eitt atkvæði.
b. Leiðbeiningar til höfunda efnis í Íslensku máli
HÞ hefur lokið við að ganga frá texta til birtingar á vef félagins og send BMK til úrvinnslu.
c. Málfræðiorðasafn
BMK og Anna Lea Friðriksdóttir hafa tekið að sér að lagfæra orðasafnið og auka við það. Eftirstöðvum af styrk, sem félagið fékk til að vinna verkið fyrir nokkrum árum, verður varið til greiðslu þóknunar. Ljóst er að fyrir það fé verður að takmarka vinnuna við ákveðna verkþætti og verður það gert í samráði við stjórn félagsins.
|