5. stjórnarfundur 2008

Árnagarði, 2. september kl. 15:00

Mætt:
Haraldur Bernharðsson, formaður
Bjarki M. Karlsson
Theódóra A. Torfadóttir
Þóra Másdóttir
Höskuldur Þráinsson
Ásta Svavarsdóttir
Veturliði Óskarsson

1. Íslenskt mál, 29. árgangur

Leiðrétting prófarka stendur nú yfir.  Ritið verður um 212 síður og er stefnt að útkomu í september. Rætt um prentun reikninga úr nýja bókhaldskerfinu. Ákveðið að verðið verði óbreytt; kr. 3.490.

2. Konráð Gíslason 200 ára

Drög að dagskrá ráðstefnunnar 11. október kynnt en 11 fyrirlesarar hafa skráð sig. Þingið verður haldið í Þjóðarbókhlöðunni en handritadeild safnsins efnir til sýningar um ævistarf Konráðs á sama tíma.

 

3. Ráðstefna um málþroska og talmein

Greint frá undirbúningi sem stendur yfir.

4. ECIEC-ráðstefna

Álþjóðlega ECIEC-ráðstefnan verður haldin í Háskóla Íslands í júlí 2009. Búist er við að 35-40 manns sæki hana. Rætt um hugsanlega aðild Íslenska málfræðifélagsins að ráðstefnuhaldinu.

 

5. Önnur mál

Undir þessum lið var rætt um erlendan fyrirlesara sem áhugavert væri að fá til landsins, e.t.v. á næstu Rask-ráðsefnu.  Einnig var kynnt uppfærsla á vef félagins.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 16:40
BMK

 


Forritun og hönnun: ©2006-2010 Frćđi ehf.