Leita í textum Íslenska málfrćđifélagsins    Leita í öllu efni á Kvisti


Árni Böđvarsson, 1924-1992

Grein eftir Árna Böđvarsson:
Evrópumál og esperanto - Íslenskt mál og almenn málfrćđi - 1. árgangur, 1979
Fyrirlestrar sem Árni Böđvarsson hefur flutt á ráđstefnum:
Viđhorf Rasks til tungumála. - 1. Rask-ráđstefna Íslenska málfrćđifélagsins.
Stiklur
Á bókasafni: Rit eftir Árna Böđvarsson skráđ í Gegni
Um höfundinn:
Árni Böðvarsson var fyrsti málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1945, cand.mag.-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1950 með málfræði sem aðalgrein. Enn fremur var hann við nám í norskri málsögu og norskum mállýskum við háskólana í Ósló og Björgvin. Hann fékkst við kennslu í ýmsum skólum í Reykjavík, var sendikennari við háskólana í Ósló og Björgvin 1955–57, safnaði til viðbótarbindis við Íslenzk-danska orðabók Sigfúsar Blöndals (1963), var aðalritstjóri Íslenzkrar orðabókar handa skólum og almenningi (Orðabók Menningarsjóðs, 1963; 2. útgáfa 1983), málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins 1984–92.
Meðal annarra verka Árna eru ýmsar kennslubækur, t.d. Hljóðfræði: Kennslubók handa byrjendum (1953) og Merkingarfræði (1972) og ýmis rit sem snerta málfarsráðgjöf, t.d. Málfar í fjölmiðlum: Hugleiðingar og leiðbeiningar um beygingar, orðaval, stíl og fleira (1989) og Íslenskt málfar (1992); enn fremur var hann ritstjóri Tungutaks, innanhússblaðs Ríkisútvarpsins (1984–92).
 



Yfirlit höfunda

Forritun og hönnun: ©2006-2010 Frćđi ehf.